Ef.....Árni Grétar Jóhannsson

Ef þjóðin hefði látið túbusjónvarpið duga og geymt það að kaupa sér 40 tommu plasmasjónvarpið á VisaRað, leyft gamla Volvonum að malla aðeins lengur, í stað borgarjeppans með myntkörfunni við stýrið, er ég ansi hræddur um að það hefði verið töluvert fámennara á Austurvelli í dag. 
Merkilegt hvað allar bendingar beinast frá okkur en aldrei að okkur sjálfum.
Að benda út í loftið, öskra og berja á potta hefur aldrei virkað við mínum timburmönnum, ég veit veit ekki með ykkur....  

HollustaÁrni Grétar Jóhannsson

"Það er bara svo hollt að kynnast hommum!" Þetta sagði 21. árs gömul stjúpdóttir mín, einnig þekkt undir nafninu Þorri, meðan hann steig trylltan diskódans og drakk vodka með röri á skemmtistaðnum Heaven (hýr skemmtistaður, að sjálfsögðu) nú á laugardagskvöld. Skömmu síðar reif hann sig úr að ofan. Held ég skilji núna stolt foreldra yfir afrekum barna sinna. Allavega var ég að springa úr stolti.

S(v)akamálÁrni Grétar Jóhannsson

25 ára stúlka úr Þorlákshöfn fannst illa til reika á skemmtistað gagnkynhneigðra í Lundúnaborg aðfaranótt laugardags. Hún var  sauðölvuð, málhölt og með afbitna kinn. Lögreglan leitar nú að manni sem gengur undir nafninu Rauðvínsson, en hann er talinn hafa átt aðild að málinu. Hugsanleg vitni að bitinu, sem og aðrir sem veitt geta upplýsingar um málsatvik eru beðnir að hafa samband við Scotland Yard.

Bjartsýni....Árni Grétar Jóhannsson

.....Hey! Pundið er komið niðrí 187 krónur!! Iss, bara orðið gefins!! -Anna Margrét Káradóttir, skælbrosandi á laugardagsmorgni. Svona er bjartsýnin mikil á 53A Hatherley Crescent þessa dagana. Lýst vel á það!

Um daginn....Árni Grétar Jóhannsson

....bað kennarinn minn mig um að nota Amy Winehouse karakterinn minn í tíma. Mér brá svo hrottalega að ég er ennþá stamandi og slefandi. Hvernig í andsk vissi hann af því...hann tók það fram að hann hefði séð myndir af mér! Hvernig er mér spurn! Svona er máttur alnetsins! Í tilefni af þessu ákvað ég að pósta eina videoi með eina manninum sem hefur skákað mér og Björtu:

http://www.youtube.com/watch?v=jf3nnMqwSNo&NR=1

Enjoy hon!

Ástkćra fósturmold!Árni Grétar Jóhannsson

Rakst á þessa frétt frá Íslandi...

Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Um miðnættið kom þó ábending um eldri konu sem sat ein í bíl fyrir utan Kringluna. Konan á pantaðan tíma hjá lækni klukkan 8.30 í morgun og vildi ekki koma of seint.

Konan sem er á níræðis aldri sagðist ekki vera mjög kunnug á þessum slóðum og vildi hafa vaðið fyrir neðan sig.

„Við aðstoðuðum hana við að komast í húsaskjól gegn því loforði að aka henni til læknisins," sagði varðstjóri lögreglunnar í samtali við mbl.is.

Konan mun hafa verið á níræðis aldri og verður séð til þess að hún kom ekki of seint til læknisins nú í morgunsárið

Mikið getur nú landið verið krúttulegt svona í miðri kreppu!
Legg til að neikvæðar fréttir verði bannaðar í einn dag og svona fréttir eingöngu sagðar....það yrði dásamlegur dagur!

Eldgamla ÍsafoldÁrni Grétar Jóhannsson

Íslendingar eru pólverjar bretlands, skál!

Ussbarasta!Árni Grétar Jóhannsson

Ég nenni ekki kreppubloggi, þannig að fólk verður að bíða lengur eftir fréttum héðan!

Módel 79Árni Grétar Jóhannsson

Jújú, núna er maður orðinn international módel, tékkið á myndinni af mér og Björtu smörtu í þessu eðaldanska hýrlíngamagasíni:

http://www.out-and-about.dk/rejseliv/O&A-Island-september-2008.pdf

Já Jóel, ég er stúrinn! Mér líður eins og framsóknarflokknum, með hnífasettið í bakinu!

Yfir og út

heyrđu mig nú....Árni Grétar Jóhannsson

....ansi mikið farið að styttast í að maður fari aftur til lands fisks og franska, þá verður sko bloggað af krafti á ný!
 Hýrakot er búið að iða af lífi í haust, flækingshundar búnir að fá að hýrast þar undir húsvegg en allt undir dyggri stjórn tilvonandi sambýliskonu minnar, Önnu Margrétar Kára og Jóhönnudóttur. Það tálkvendi er ættað úr Þorlákshöfn og ætti því að fara létt með að hafa hemil á hundunum. Baráttukveðjur til Önnu úr fásinninu hér á Fróni.
Ást og friður sé með yður

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...